Ferlið

  • 1. Þú bókar Stall

    Þú bókar sölurými í 7, 14, 21  daga með því að smella hér. Eftir bókun færð þú sendan tölvupóst með upplýsingum um það hvernig þú skráir þig inn á “minn stallur”, þar sem þú getur skráð vörur inn í sölukerfið.

  • 2. Skráning á söluvörum

    Þegar þú hefur skráð þig inn á ”minn stallur” skráir þú þær vörur sem þú vilt selja og verðleggur þær. 

    Þú gerir það með því að fara í “vörur” og ýta á “bæta við vöru”

    Þar skráir þú inn greinagóða lýsingu á vörunni eins og “Top rider hnakkur” stærð, sölurýmisnúmer og verðleggur vöruna. 

    Mikilvægt að setja inn mynd af vöru til að hún birtist á vefnum okkar "Vörur í stalli".

  • 3. Upphaf leigutímabils

    Þú mætir í verslun okkar, Stallur í Garðartorgi 3, Garðabær  til að setja upp sölurýmið þitt. Það er í boði að mæta virka daga 30 mín fyrir opnun eða lokun daginn áður en leigutímabil hefst þá mun starfsmaður Stalls yfirfara og ástandsskoða reiðtyg.

    Við bjóðum ekki upp á uppsetningu á sölurými á laugardögum, ef leigutímabilið þitt hefst á laugardegi kemur þú til okkar á föstudegi, daginn áður 30 mín fyrir opnun eða lokun.

    Ef þessar tímasetningar henta ekki hafðu samband á info@toltari.is ,á samfélagsmiðlum @stallur.is eða síma 7864083 og við finnum lausn saman.

    Þegar þú mætir til okkar afhendum við þér herðatré, merkispjöld, strikamerki. Þú merkir svo söluvörurnar þínar og setur þær fallega upp í þínu sölurými, starfsmaður er á staðnum til að aðstoða og leiðbeina við uppsetningu.

  • 4. Vörur á vefnum

    Til að auka líkur á sölu er gott að taka fallegar myndir af því sem þú ert með til sölu einnig býður Stallur uppá faglegar myndatöku að kosnaðalausu. Það eykur líkur á að einstaklingar búsettir fjarri verslun geti verslað t.d. í gegnum símgreiðslu. Við hvetjum ykkur einnig til að vera dugleg að deila ykkar söluvörum á facebook gruppuna “Stallur gefðu hestavörum nýtt líf”.

    Þið finnið okkur líka á instagram stallur_hest og hvetjum við ykkur til að deila myndum af ykkar sölurými og vörum, tagga okkur @stallur_hest og @toltariehf, það eykur líkur á sölu til muna.

  • 5. Fylgjast með sölunni

    Á meðan sölutímabilinu stendur fylgist þú með gangi sölunnar undir “sala” á “mín síða ” svæðinu þínu. Þar uppfærast nýjustu sölutölur úr þínu sölurými.

  • 6. Breytingar á verði eða afsláttur

    Hægt er að gera verðbreytingar á vörum í sölurými meðan á leigutímabili stendur. Það er gert inn á “síða mín ” undir “vörur”, þar veluru vöruna og breytir verði. Ef þú breytir verði á vöru þarf að koma hið fyrsta í verslun og fá nýjan merkimiða til að setja á vöruna. Verð vöru uppfærist strax í sölukerfinu og því selst varan selst samkvæmt því.

    Ef þú vilt gefa afslátt á vörum í sölurými meðan á leigutímabilinu er þarf að hafa samband við verslun, best að hafa samband við okkur í gegnum gegnum facebooksíðu okkar eða á netfangið info@toltari.is og við munum græja það fyrir þig. Vð erum með 25%, 30%, 40% og 50% afsláttarmiða til merkingar í verslun Stalls.

    Ef þú vilt ekki setja ákveðnar vörur á afslátt getur þú fjarlægt þær úr sölu áður en þú virkjar afsláttinn.

  • 7. Lok leigutímabils

    Í lok leigutímabils, á síðasta söludegi, kemur þú að ganga frá sölurýminu og sækja vörur. Sé síðasti söludagur á virkum degi kemur þú klukkan 30 mín fyrir opnun eða lokun  á laugardögum.

    Mikilvægt er að allir sem koma að tæma sölurými gefi sig fram við starfsmann í afgreiðslu áður en farið er inn að tæma rýmið, sem og áður en yfirgefið er verslun með vörur. 

    Hreinsa þarf merkispjöld  af vörum sem og skila herðatrjám fyrir 30 mín eftir opnun eða lokun.

    Hægt er að fá starfsfólk Stalls  til að tæma sölurými fyrir leigjanda gegn 2000kr gjaldi en semja þarf um slíkt fyrir fram. Starfsfólk hefur rétt á að ganga úr skugga um að allar vörur sem eru teknar niður séu réttar og í eigu leigutaka, starfsfólk getur óskað eftir að leigutaki sýni skilríki. 

    Ef vörur eru ekki fjarlægðar 30 mín eftir lokun verslunnar síðasta söludag leigutímabils, er rukkað  5000kr  þjónustugjald fyrir það að taka niður vörur og pakka þeim. Rukkað er 2500kr á dag í geymslugjald þegar vörur eru ekki sóttar. Vörur sem ekki eru sóttar innan viku verða eign Stalls. 

    Söluhagnaður er ekki greiddur út fyrr en vörur hafa verið sóttar.